|
Ágrip af sögu álsteypu hjá Hellu
Málmsmiðjan Hella
hf. var stofnuð 11. maí 1949. Starfsemin hófst í gamalli hlöðu
við Haga í Reykjavík. Að stofnuninni stóðu Leifur Halldórsson
módelsmiður og Róbert Færgeman, danskur málmsteypumaður sem
þá bjó hér á landi, ásamt nokkrum öðrum góðum mönnum sem höfðu
framsýni til að leggja góðu máli lið. Allra
hluta, efna og tækja varð að afla hér innanlands, sökum mjög
strangra innflutningshafta. Vélar, áhöld og tæki varð ýmist
að smíða eða útbúa eftir megni úr gömlum tækjum.
Steypt var úr ál-
og koparblöndum. Hráefnið var gamlir brotamálmar, álið að
mestu fengið úr gömlum flugvélaflökum sem menn gengu jafnvel
upp til fjalla til að sækja þau. Framleiðsla
fyrstu áranna stjórnaðist mest af þeirri þörf sem var í landinu
sökum fyrrnefndra innflutningshafta. Í fyrstu voru
framleidd búsáhöld, svo sem pottar og pönnur, svo og ýmsir
hlutir til viðhalds á vélum og tækjum. Fljótlega hófst svo
framleiðsla á brynningatækjum fyrir fjós, hlutum í reiðtigi,
innhlutum í klósettkassa og sorprennulokum.
| Árið 1957
flutti Hella í fyrsta hluta nýbyggingar við Síðumúla í
Reykjavík. Þá hafði framleiðslan þróast nokkuð. Auk fyrrnefndra
verkefna hófst framleiðsla á handsnúnum handfæravindum,
hverfisteinahúsum, rafmagnstöflukössum og ýmisskonar rafmagnstengikössum
|
|
|
|
Einnig
voru framleidd viktarlóð fyrir frystihúsin, skilti, bæði vegvísar
og skildir á leiði og legsteina, auk ýmissa skrautmuna og
fleira þess háttar.
Nú
fóru ýmsir vélaframleiðendur að nýta sér í auknum mæli þjónustu
Hellu hf. til að steypa íhluti í framleiðsluvörur þeirra.
Má þar nefna til dæmis Jötun hf. sem framleiddi rafmótora
og Electra Tæki hf. sem hóf framleiðslu á rafknúnum handfæravindum
og netaspilum á sjöunda áratugnum. Á áttunda áratugnum, eða
eftir að Ísal tók til starfa, var farið að vinna eftir ýmsum
möguleikum sem þá sköpuðust með blöndun áls sem hentaði mismunandi
aðstæðum.
Álið var til dæmis blandað kísil sem gaf
aukna steypuhæfni og sveigjuþol í vegvísa fyrir Vegagerð ríkisins
og raflínubúnað fyrir RARIK og Landsvirkjun.
Kísilálið var einnig notað í fastsetningapolla,
kraftblakkarkjamma og fleira í báta og skip. Þessar
stöðluðu álblöndur gerðu kleift að gera marktækar mælingar
á brotþoli og sveigjuþoli steyptra hluta hjá Iðntæknistofnun
Íslands og með árunum jókst nákvæmni og þekking á
efnismeðferð, steypuhita, hitameðferð og fleiru sem skiptir
miklu máli um að ná góðum árangri. Á níunda áratugnum
jókst notkun á magnesíumblönduðu áli. Þessi blanda sem inniheldur
2-5% Mg hentar vel þar sem selta veldur tæringu, til dæmis
í fiskvinnsluvélar og veiðafærabúnað. Sem dæmi um viðskiptavini
sem nota þessar álblöndur má nefna Baader Ísland, DNG
Sjóvélar, Elektra Tæki hf., Fiskvélar ehf. og fleiri.
Álblöndur
með Mg innihald yfir 3% eru mjög erfiðar og vandasamar í steypu.
Hefur verið unnið mikið tilraunar og þróunarstarf innan fyrirtækisins
á undanförnum árum og má segja að það starf sé grundvöllur
þeirrar vinnslu í dag. Þær tilraunir eru enn í gangi og enn
er leitað betri árangurs á tæringarþoli og öðrum efnisgæðum
til framþróunar í samstarfi við Iðntæknistofnun Íslands.
Sem
framhald þróunarstarfs á meðferð steypuáls má nefna skautlásabúnað
sem unninn var í samstarfi við Ísal. Þar er um að ræða álblöndu
með kopar sem aðalíblöndun auk fleiri efna. Hinir steyptu
hlutir eru síðan hitameðhöndlaðir á sérstakan hátt sem gefur
þeim aukinn brotstyrk. Hefur þessi búnaður reynst mjög vel,
bæði hjá Ísal og Söral í Noregi.
Framleiðsluvörur
Hellu hf. nú eru helstar auk skautlásanna, raflínubúnaður
í háspennulínur og háspennuvirki, upphækkunarsett fyrir bíla,
ýmis tæki til matvælavinnslu, fastsetningapollar og fleira
fyrir skip og báta, vegvísar og skilti. Þá er framleiðsla
steyptra íhluta til framleiðslu fiskveiði- og fiskvinnslubúnaðar
fyrir framleiðendur þeirra tækja, og má segja að hver málm-
og vélsmiðja í landinu teljist til viðskiptavina Hellu
hf. Flest orkudreifingarfyrirtæki landsins kaupa af Hellu
hf. ýmsan raflínu- og vatnstengibúnað og skipta framleiðsumót
Hellu hf. á því sviði mörgum hundruðum.
Sem
dæmi um nýja framleiðslu má nefna útibekki og afmörkunarpolla
á opin svæði fyrir sveitarfélög og ekki síst framleiðslu á
tengibúnaði á fiskidæluslöngur fyrir loðnu-, síldar- og skelfiskveiðiflotann.
Þar hefur orðið ævintýraleg aukning síðustu árin og notar
nánast allur loðnu- og síldarflotinn búnað
frá Hellu hf. Innflutningur á þessum tengjum hefur
nú að mestu lagst af og söluaðilar slangnanna selja nú íslensk
tengi.
Hér hefur eingöngu verið stiklað á stóru í framleiðsluferli
Hellu hf. og aðeins nefnt það sem tilheyrir álframleiðslu,
en hlutur koparsteypu er einnig stór í rekstrinum og verður
ekki rakinn hér.
|